Syrpa 374 – Konungur strandarinnar
Ripp, Rapp og Rupp halda afmælisveislu fyrir Andrés á ströndinni en eins og alltaf á afmælinu sínu, þá lendir Andrés í ógöngum. Pikkólína og Jóhann fá óvænt frí í vinnunni. Þau fara að leita að fjársjóði en Jói Rokkafellir fylgist grannt með öllu sem þau gera. Andrés reynir að fá miða á Rokkendurnar fyrir Andrésínu en ferðalagið til Gæsabæjar reynist honum vægast sagt erfitt. Mikki Mús er fenginn til að hjálpa þjóð í hliðstæðum heimi þar sem skriffinnskan er í fyrirrúmi. Þar hittir hann gamlan vin sem rænir öllu og ruplar.
Kilja, 256 síður.
Verð.
1.850.-